Hræsni

Þeir eru að verða aumkunarverðir, þingmenn Hryfingarinnar. Nú vitna þeir í reglur sem eiga sér enga stoð. Auðvitað er þetta bara þáttur í pukrinu með norrænu velferðarstjórninni. Það má ekki styggja dramadrottningarnar tvær JS og SJS. Það vita það allir að stjórnin er í raun orðin minnihlutastjórn og þingmenn hreyfingarinnar halda henni á floti. Þeir hafa fengið einhverja dúsu í staðinn. Formaður landskjörstjórnar segir með réttu að ekkert sé því til fyrirstöðu að kjósa um fleira enn eitt mál í einu í sömu kosningunum. Það eru margir farnir að skjálfa. Það líður að skuldadögum og þarf að pukrast og blekkja enn meira en nokkru sinni fyrr. Lýðræðisástin er afar sérkennileg hjá sumu fólki.
mbl.is Spurning um ESB á öðrum kjörseðli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bönnum nagladekkin.

Það hefur lengi verið vitað að naglar í dekkjum spæna upp malbik og önnur varanleg slitefni á götum og vegum. Svifmengun eykst og kostnaður við viðhald einnig.Þá geta nagladekkin veitt falska öryggistilfinningu og í raun er flest neikvætt við að aka á negldum dekkjum. Nú eru á markaði fjölmargar tegundir af frábærum dekkjum sem hægt er að aka á allt árið um kring án nagla. Í meira en áratug hef ég ekið mínum bílum naglalaust án nokkurra vandræða. Ég bý að vísu hér sunnanlands og vetur hafa verið fremur snjóléttir. Þessi vetur er þó undantekning og segja má að það hafi verið snjór hér meira og minna síðan í lok nóvember. Allt hefur gengið að óskum án naglanna. Ég er viss um að það væri mikið framfaraskref að banna nagladekkin. Það mætti undanskilja lögregluna, sjúkraflutningana og slökkviliðið ef ástæða þykir til þess. Verum umhverfisvæn og spörum í leiðinni.
mbl.is Nagladekk ógna heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonirnar og Steingrímur.

 Þær eru miklar vonirnar hjá þessum frammara.Orðið vonandi kemur fyrir 7 sinnum í þessari stuttu frétt. Frétt um nýjustu útgáfuna um að festa einkaeign örfárra manna á fiskveiðiauðlindinni enn frekar í sessi.Allar væntingar um að þjóðin fái að njóta hennar eru tálvonir. Steingrímur hefur séð um sína frá því þessi norræna velferðarstjórn var sett á laggirnar. Fjármagnseigendur hér , vogunarsjóði, breta og hollendinga og ýmsa fleiri. Þessi pólitíski umskiptingur virðist ætla að verða einn mesti óþurftargemlingur sem komið hefur að íslenskri pólitík í áratugi. Og eru þeir þó æði margir. Það er auðvitað sárt fyrir gamlan vinstrimann að sjá formann VG vera að ganga að flokknum dauðum. En það verður að hafa það. Menn sem geta ekki staðið við orð sín uppskera í samræmi við sáninguna og það verður varla mikið eftir af VG þegar búið verður að telja upp úr kjörkössunum í næstu þingkosningum. Það eru nefnilega margir sem enn munu " þvælast fyrir" Steingrími J. Sigfússyni í pólitíkinni. Manninum, sem ég batt einu sinni vonir við, studdi og kaus frá 1999. Ég ætla að halda áfram að " þvælast fyrir".

 


mbl.is Breyttist með Steingrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kunnuglegt.

Sirkusinn í bæjarstjórn Kópavogs er alltaf jafn skemmtilegur. Eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar féll meirihluti íhalds og framsóknar. Fljótlega kom í ljós að oddviti SF hugði gott til glóðarinnar og ætlaði sér bæjarstjórastólinn. Enda bitlingar ætíð verið ær og kýr kratanna. Guðríður Arnardóttir neyddist til að samþykkja ópólitískan bæjarstjóra. Sem var henni auðvitað þvert um geð. Aðall SF er valdagræðgin og hugsjónafátæktin. Þó mér finnist nú ekkert sérlega vænt um íhaldið og framsókn er ekkert eðlilegra en að þessir flokkar séu komnir til valda á ný. Aðför SF að hinum ópólitíska bæjarstjóra snérist í höndum hennar og uppskeran er eftir sáningunni. Þetta er svo sem alkunna úr núverandi ríkisstjórn. Deildu og drottnaðu og komdu ár þinni vel fyrir borð. Hálf samfylkinginn hefur verið á beit á stjórnarráðstúninu síðan núverandi ríkisstjórn var mynduð. Allmargir skósveinar Steingríms J. fá að naga með. Allir, sem ekki samþykkja skilyrðislausa hlýðni við Jóhönnu og Steingrím, eru settir út af sakramentinu. Skipulega er grafið undan öllum sem ekki hlýddu í icesavemálinu. Það þarf ekki að efast um hvaðan ófrægingarherferðin gegn Ögmundi Jónassyni er runnin. Einum einlægasta og heiðarlegasta þingmanni sem nú situr á þingi.Bæjarfulltrúuar SF og VG í Kópavogi dingla nú allir í snöru sem þeir ætluðu öðrum. Það er þeim bara mátulegt.En vonandi verður alltaf gott að búa í Kópavogi og víðar.
mbl.is Átti undir högg að sækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri stjórn ?

Sumir hafa kallað þessa ríkisstjórn fyrstu tæru vinstristjórnina. Ekkert er þó fjær sanni. SF hefur aldrei verið vinstriflokkur og nokkrir hrunráðherrar úr síðustu ríkisstjórn SF og íhaldsins eru þarna innanborðs. Reyndar hefur SF aldrei verið annað en hugsjónalítil moðsuða um völd og bitlinga.Eina hugsjón flokksins er aðildin að evrópubandalaginu. Össur hefur reyndar líka viðrað hugmyndir um markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins, sem ekki er nú beinlínis vinstripólitík. Hvað sem annars má segja um störf Jóns Bjarnasonar sem ráðherra er þó alveg ljóst að hann hefur verið trúr yfirlýstri stefnu VG varðandi aðildina að ESB og ekki verið hrifin af brölti SF í þeim efnum. Ég held að það þurfi ekki sérstakt pólitískt nef til að sjá að litlu einræðisherrarnir, Jóhanna og Steingrímur, hafa nú þegar tryggt sér stuðning eða hlutleysi nokkurrra stjórnarandstöðuþingmanna. Vitað er um afstöðu Sifjar og Guðmundar Steingrímssonar í ESB deilunni. Þó lítið sé gefið upp um viðræður stjórnarinnar við Hreyfinguna er þó líklegt að henni hafið verið lofað einhverju fyrir hlutleysi. Sem gömlum stuðningsmanni Steingríms og VG rennur manni til rifja hvernig komið er fyrir honum. Þegar ríkisstjórn þessi hefur lokið ferli sínum mun ekki steinn standa yfir steini í flokki þessa stofnanda hans. Minnisvarði formannsins verður ekki merkilegri en rústirnar af þessum fyrrum hugsjónaflokki margra vinstrisinnaðra kjósenda hans. Það er einkennilegt atferli sumra dýrategunda að útrýma sjálfum sér. En það er heldur ekki eftirsjá af þeim öllum.

 

 

 


mbl.is Látinn víkja vegna ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar breytingar.

Ég heyrði í kvöld að til stæði að senda Jóhönnu og Steingrím í æfilangt frí frá pólitíkinni. Það væru bestu tíðindi í stjórnmálasögunni ef satt væri. Steingrímur hefur sjálfur sagt að ekkert sæti í þessari "norrænu velferðarstjórn" sé frátekið, og hlýtur líka að verða hvíldinni feginn.
mbl.is Breytingar á ríkisstjórninni ræddar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búrtíkurnar gjamma.

Álfheiður er meðlimur í innstu náhirð fjármálaráðherrans. Það er stundum erfitt að viðurkenna mistök og sannleikurinn bitur og rammur. ÓRG sparaði þjóðinni marga milljónatugi með því að koma í veg fyrir að icesavelögin yrðu virk. Þjóðin felldi lögin á laugardegi og milljarðarnar 25 sem Steingrímur ætlaði að borga í vexti af "skuldinni" á mánudegi fengu að vera kyrrir í ríkissjóði. Það er alveg sama hve Steingrímur og skoðanabræður hans reyna til að falsa söguna um icesavedeiluna. Þeim mun ekki takast það. Málið er nú í réttum farvegi og Ólafur Ragnar réttur maður á réttum stað. Meðan núverandi ríkisstjórn situr, sem deilir og drottnar, hunsar vilja meirihluta þjóðarinnar og fer sínu fram hverju sem tautar og raular, er nauðsynlegt að hafa góðan öryggisventil á Bessastöðum. Þessai brandari Álfheiðar er alveg misheppnaður. Hins vegar myndi ég fagna því ef Ólafur Ragnar gæfi enn kost á sér til framboðs til forseta á næsta ári.
mbl.is Vill forsetann í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósköp leiðist mér ykkar grenj..

ýmist í dúr eða moll. Sagði skáldið. Það er alveg yfirgengilegt hvernig samtök og einstaklingar í ferðaþjónustu geta látið. Halda mætti að vegagerðin og ríkisstjórnin hefðu komið þessu hlaupi af stað. Það mætti líka halda að landið riðaði til falls vegna mannvonsku vegamálastjóra og samgönguráðherrans. Bara 14 manns í mat í stað 130. Voðinn blasir við. Kannski eru ekki allir læknaðir af 2007 veikinni. Frekjunni og græðginni. Ég mun sneiða vandlega hjá Hótel Höfðabrekku ef ég á leið þar um. Djöfulgangurinn í þessu fólki verður því til ævarandi skammar. Vegagerðin og ríkisstjórnin stjórna ekki náttúruöflunum hér eins og halda mætti af viðbrögðunum.
mbl.is „Finnst þetta með ólíkindum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byssubófi ?

Páll Reynisson er prýðisnáungi. Það er reyndar allt of langt síðan ég drakk með honum gíraffakaffi síðast. Það er auðvitað rétt að það fer ekki saman að drekka áfengi og að leika sér að skotvopnum. En sem betur fer gerðist ekki neitt alvarlegt og ekkert bendir til þess að Páli sé ekki treystandi fyrir byssusafni sínu framvegis. Það er reynt að gera úlfalda úr mýflugu. Kannski þarf háyfirvaldið hér á Selfossi að ganga rösklega fram nú, enda reyndi það að koma þessum stórglæpamanni í gæsluvarðhald en tókst það ekki. Þetta yfirvald hefur þó ekki alltaf verið óðfúst til að hneppa glæpamenn í varðhald svo sem frægt er orðið að endemum. Veiðisafnið á Stokkseyri er merkilegt safn og við eigum Páli Reynissyni mikið að þakka fyrir að hafa komið því á laggirnar af einstakri elju og dugnaði. Þarna koma árlega þúsundir ferðamanna og byssurnar eru órjúfanlegur hluti af starfseminni. Ég sendi Páli góðar kveðjur og vona sannarlega að mál þetta fái farsælan endi. Hins vegar hef ég áhyggjur af að hinn landfrægi sýslumaður okkar sunnlendinga verði þar Þrándur í Götu.
mbl.is Fær ekki vopnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagdraumar.

Þeir eru undarlegir dagdraumar forsætisráðherrans. Nú á umboðslaust stjórnlagaráð að leysa vanda þjóðarinnar. Ráð, sem hefur ekki einu sinni meirihluta Alþingis að baki sér. M.a. annars skipað nokkrum alræmdum besservisserum og frekjudöllum.Þetta er eiginlega grátlegra en tárum taki. Stjórnarskrár eru ofmetnasta lagasetning sem til er. Verstu einræðisríkin hafa flottustu stjórnarskrárnar. Dettur einhverjum í hug að einhver ákvæði í stjórnarskrá komi í veg fyrir spillinguna sem gegnsýrir allt stjórnkerfið, fjármálastofnanir, embættismannakerfið og jafnvel dómstólana að auki. Sjálfur hefur þessi forsætisráðherra raðað gæðingum sínum á beit á stjórnarráðstúnið að vild sinni. Það þarf ekki að auglýsa stöður vegna þess að þessir sömu gæðingar ætla bara að bíta svolítið tímabundið. Engu sæmilega skynsömu fólki dettur í hug að stjórnarskrá Íslands hafi nokkru máli skipt þegar allt hrundi hér haustið 2008. Á vakt núverandi forsætisráðherra.Því miður hefur tekist að blekkja allt of marga til að trúa því að bruðlið með stjórnlagaþing og stjórnalagaráð muni skila einhverju jákvæðu til þjóðarinnar. Þessum fjármunum hefði verið betur varið í rækilega hreingerningu í öllu heila stjórnkerfinu. Það eru dapurlegar kenningar þessa ráðherra að afurðir stjórnlagaráðs verði uppfylling óska Jóns Sigurðssonar um nýja og betri tíma fyrir íslendinga. Við þurfum ekki nýja stjórnarskrá. Við þurfum nýja hugsun, nýtt réttlæti og nýjan kraft til að varðveita það.
mbl.is Draumur Jóns um stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband