7.5.2007 | 02:26
Kraftaverk.
Forustumenn framsóknar treysta nú á kraftaverk. Þessi flokkur sem einu sinni átti hugsjónir er nú á grafarbakkanum. Nú er ekkert eftir nema valdasýkin. Kjötkatlastefnan ræður ein ferðinni. Þjóðhyggjuleg og í einni samfellu. Á laugardaginn kemur er tækifæri til að segja álit sitt á verkum þessa flokks undanfarin ár. Einkavinapólitík og stóriðjustefnu. Látum ekki þetta nátttröll laumast bakdyramegin að okkur eins og í síðustu kosningum. Það væri gæfuspor fyrir land og þjóð að losna við þennan flokk í eitt skipti fyrir öll. Hann er orðinn að stórslysi í íslenskri stjórnmálasögu. Öxin og jörðin geyma hann best. Ég vona að nú sé ekki tími kraftaverka. Látum laugardaginn verða að hreingerningar- og tiltektardegi. Þá getum við tekið fagnandi á móti sumrinu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.