Messa.

Ég hef ekkert á móti kristinni kirkju. Það þarf bara að aðskilja hana frá ríkisvaldinu. Og við skulum ekki gleyma því að ekkert hefur reynst mannkyninu dýrkeyptara en trúarbrögðin. Fylgifiskarnir margir. T.d. morð, rán, nauðganir og niðurlæging mannlegrar reisnar.Engar hefðir eru svo ríkar að ekki megi breyta þeim. Sleppum þessari prósessíu frá þinghúsinu yfir í dómkirkjuna. Og hættum að pína þingmenn af karlkyni til að mæta með hálsbindi. Það er indælt að sjá fjölbreyttan og frjálslegan klæðnað þingkvenna. Það er hægt að klæða sig snyrtilega og vera alveg dragfínn án þessarar óþægilegu snöru um hálsinn. Virðing Alþingis mun engan hnekki bíða við þetta.Íhaldssemi er nú til í okkur öllum. Hefðir og venjur sterkar. Við skulum bara gerast svolítið frjálslyndari svo við njótum okkar betur. Það mun reynast okkur öllum vel.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband