23.1.2008 | 07:34
Meistarinn mikli.
Róbert Fisher hefur verið jarðsettur í Laugardælum. Ég þekki séra Kristinn Ágúst. Var kunnugt um að hann er heiðursmaður. Enn meiri heiðursmaður í mínum augum nú. Ég fylgdist með nokkrum skákum í Laugardalshöllinni 1972. Því mun ég aldrei gleyma. Eigum við ekki að lofa þessum mesta skáksnillingi sögunnar að hvíla í friði og hætta öllu tuði um hvað hafi verið rétt eða rangt við útför hans. Minning hans mun lifa um ókomna tíð.
Engir eftirmálar af útför Fischers | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.