13.1.2009 | 13:06
Köttur útí mýri.
Því miður er til of mikið af fólki sem hatar hunda og ketti. Ég bý sjálfur í blokk með 14 íbúðum. Sem betur fer eru grannar mínir umburðarlyndir. Kötturinn minn veitir mér mikla gleði og félagsskap. Það er enginn einn sem hefur lítið vinalegt dýr hjá sér. Þessi ágæti maður ætti bara að ná sér í góðan vin og spyrja hvorki kóng né prest. Ég sendi honum mínar bestu kveðjur og styð hann heilshugar.
Einbúinn við Suðurlandsbraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.