Múrveggur.

Eins og alltaf hefur minn gamli lærifaðir rétt fyrir sér. Hvað hefur komið fyrir Steingrím J. Sigfússon? Datt hann á hausinn eins og Svandís? Hann hefur stillt þingflokki sínum upp að múrveggnum. Nú skuluð þið samþykkja orðinn hlut. Það er ömurlegt að hugsa til þess að heiðarleikinn skuli aflagður í VG. Við blasa hrein kosningasvik. Ef stjórnarandstaðan stendur saman og aðeins 3 þingmenn VG standa við sannfæringu sína er málið fallið í þinginu. Það verður vandlega fylgst með hverjir beygja sig fyrir ofbeldinu og hverjir hafi enn reisn til að láta sannfæringu sína ráða.
mbl.is Icesave málið fari fyrir dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband