Trúin er sumum allt.

Það er ömurlegt fyrir þingmenn VG að þurfa að standa í þrifum eftir hrunflokkana 3. Við skulum ekki gleyma ábyrgð SF á icesavemálinu. Man fólk kannski ekki eftir hver var bankamálaráðherra í stjórn SF og íhaldsins? Sumir tala um rýtingsstungur í bakið á foringjanum. Hann sjálfur stakk Ögmund í bakið sama daginn og hann sagði af sér. Dylgjaði um verkkvíða vegna heilbrigðismálanna þó honum hafi manna best verið ljós hin raunverulega ástæða. Ég vona að Ögmundur, Guðfríður Lilja, Atli og fleiri þingmenn VG vilji enn halda sambandi við sannfæringu sína.  Þetta mál er afar erfitt fyrir okkur sem kusum VG í síðustu kosningum. Endalaus vonbrigði með formanninn. Ég hef ekki skipt um skoðun í pólitíkinni. Ég er líka enn sömu skoðunar á kúgun og ofbeldi. Þessvegna vona ég að kórstjórar ríkisstjórnarinnar sjái að sér og virði skoðanir fólks sem er ekki tilbúið að selja sannfæringu sína fyrir ráðherrastóla.

 


mbl.is Hefur trú á að stjórnin lifi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband