Alþýðuforinginn hóflegi.

Lýðræðissinninn sem nú vermir stól fjármálaráðherra veit sannarlega hvað okkur er fyrir bestu. Hann vill líka taka hóflegt tillit til andstæðinga sinna. Hann lauk þó ræðu sinni í gær með því að endurtaka að þeir væru að þvælast fyrir honum. Vg hefur 14 þingmenn og Steingrímur J. Sigfússon veit fullvel að 5 þeirra eru á móti nýjustu útgáfu hans á icesave frumvarpinu. Það þýðir einfaldlega að það er ekki þingmeirihluti fyrir málinu. Tveir þingmanna VG, Lílja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson sögðu nei í gær. Það vita allir um afstöðu Guðfríðar Lilju og Atla Gíslasonar. Og þó Ásmundur Daðason hafi sagt já í gær lýsti hann því jafnframt yfir að það segði ekkert um um endanlega afstöðu hans. Steingrími er að vísu nokkur vorkunn að þurfa að standa í þessum óþveraskítverkum. En hann er nú ekki maður að meiri að ætla að þvinga nokkra þingmenn Vg til að hlýða og leggja sannfæringu sína til hliðar. Hann hefur örugglega unnið sér inn mörg prik frá vinum sínum í samfylkingunni á síðastliðnum vikum. Hann virðist vera sáttur við það. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi gamli baráttumaður þjóðhollra íslendinga er í mjög slæmum félagsskap um þessar mundir. Margir sem kusu Vg í síðustu kosningum eru mér sammála í þessum efnum. Er ekki einfaldast fyrir þennan kjaftfora sveitapilt að ganga bara í samfylkinguna?

 

 

 

 

 


mbl.is Óvissa um hvenær Icesave- frumvarpið verður afgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli hann færi ekki aðra leið ef fær væri - búið að þvæla með þetta mál allt of lengi og á meðan sitja önnur verk ókláruð.

Sölvi (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 12:52

2 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Já Sölvi minn það er kannski illa gert að vera að hnýta í Steingrím. Hann er dýrlingur miðað við Dóra, Davíð og öll hin slysin í íslenskri pólitík sem bera alla ábyrgð á icesave vandræðunum.

Sigurður Sveinsson, 10.12.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband