12.3.2009 | 09:54
Þrautseigja.
Þegar þessar aðstæður koma upp hugsa ég oft til Vestfirðinga. Líklega sérstök manngerð sem sættir sig við að búa við snjóflóðahættu. Náttúran og fjalladýrðin togar í fólk. Fólkið býður náttúruöflunum birginn og virðist una glatt. Ég er nokkuð víðförull um þetta fallega land sem við eigum. En Vestfirðirnir hafa orðið útundan að mestu. Hef þó komið á Tálknafjörð, Patreksfjörð og Bíldudal. Nú verð ég að gera bragarbót í sumar. Gerða mér ferð eins langt og vegakerið býður uppá. Ég sendi öllum Vestfirðingum mínar bestu kveðjur.
Rýmingu aflétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Manngerðin sem sættir sig við að búa á jarðskjálftasvæði er nú samt ekkert síður sérstök er það?
Eini munurinn er að maður getur ekki forðast jarðskjálftann. ;)
Ég mæli annars með vestfjörðum. Þetta er án efa eitt fallegasta svæði sem við eigum.
Baldur (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 10:45
Sjálf er ég alin upp á Ísafirði og man bara eftir skemmtilegum sköflum og ófærð, enda þurfti ég ekkert að komast nema útí skaflana og svo heim í matinn.
Flutti reyndar þaðan þegar ég var 11 ára. En sammála ykkur, það þarf dug til að endast þarna.
Marta smarta, 12.3.2009 kl. 22:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.