Færsluflokkur: Bloggar

Svindl.

Það verður minna úr aurunum handa Steingrími garminum ef kaupmennirnir ætla að stinga hækkuninni í eigin vasa. Það er þó til eitt óbrigðult ráð við þessu. Nú legg ég til að reykingamenn taki mig sér til fyrirmyndar. Ég hætti að reykja þann 4. desember s.l. Úr því að ég gat þetta eftir að hafa verið reykþræll í 45 ár geta það allir.


mbl.is Birgðu sig upp af tóbaki og hækkuðu verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárkúgun.

Þetta er að sjálfsögðu réttmæt ásökun þó ég sé nú lítt hrifinn af Bessastaðabóndanum. Hann er snillingur í að nota þau tækifæri sem gefast til að upphefja sjálfan sig. Við þekkjum öll hvernig hann dekraði við glæpamennina sem komu okkur á hausinn. Mátti vart vatni halda yfir snilld þeirra og lofsöng þá daglega. En Ólafur Ragnar á líka að njóta sannmælis. Hann hefur opinberlega viðurkennt að hann hafi látið blekkjast. Það er meira en margir aðrir hafa gert. Það vottar þó fyrir iðrun hjá forsetanum. Iðrun, sem ekki er til hjá fjöldamörgum sem voru á kafi í sukkinu.  Það kemur að sjálfsögðu ekki annað til greina en að fella lögin í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 6. mars n.k. Við skulum líka hafa í huga að raunverulegur þingmeirihluti var alls ekki til staðar fyrir lögunum. Steingrímur kúgaði hluta af þingliði sínu til að samþykkja þessi þrælabönd. Þumalskrúfurnar á Guðfríði Lilju og Ásmundi Einari blöstu við öllum þann 30. desmber s.l. Því er enn meiri ástæða til að fella þessi lög. Hræðsluáróður Samfylkingarinnar er lítilmótleg tilraun til að styggja ekki vini sína í Brussel. Þessi svokallaði jafnaðarmannaflokkur er tilbúinn að fórna hverju sem er fyrir ESB aðildina. Og það sem verst er að Steingrímur virðist orðinn að þægum smalahundi fyrir flokkinn sem aðeins hefur þá hugsjón að viðja okkur inní ESB.

 


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meinloka Steingríms.

Þetta er að sjálfsögðu laukrétt hjá þeim Jóni Steinari og Sigurði. Jóhanna og Steingrímur verða að hlusta í stað þess að berja hausnum við steininn og þykjast vita hvað okkur er fyrir bestu. Það er auðskilið hversvegna Jóhanna er föst á þessum stað. Icesave er í hennar augum aðeins fórnarkostnaður sem þarf að færa svo hægt verði að véla okkur inn í ESB þvert á meirihlutavilja þjóðarinnar. Steingrímur er hins vegar haldinn alvarlegri meinloku um að lengra verði ekki komist og getur ekki skilið að Svavar Gestsson var rangur maður á röngum stað í samningagerðinni.Auðvitað eru flestir landsmenn löngu búnir að fá nóg af þessu máli. En það má alls ekki verða til þess að við samþykkjum þessar drápsklyfjar. Þetta mál er svo dapurlegt frá upphafi að það er þyngra en tárum taki. Höfuðábyrgðina bera íhald og framsókn þó SF eigi líka verulegan hlut. Það þýðir ekkert fyrir SF liða að tala bara um hrunflokkana 2. Hrunflokkarnir eru einfaldlega 3. Það vitum við öll. VG verður með engu móti kennt um hvernig fór enda algjörlega áhrifalaus flokkur þegar allt fór á hliðina. Það er grátlegt að sjá sinn gamla foringja, Steingrím Sigfússon, eyðileggja flokk sinn með þeim hætti sem hann er að gera. Ég er viss um að það er að sumu leyti ómeðvitað þó ég þekki ekki manninn persónulega. Er öllu fórnandi fyrir nokkra ráðherrastóla? Ráðherrastóla í ríkisstjórn ,sem ver fjármagnseigendur með kjafti og klóm meðan mörgum heimilum landsins blæðir út. Og leyfir sér að kalla sig norræna velferðarstjórn.Kannski var þessi tilraun VG um stjórn með SF dæmd til að mistakast frá upphafi.Flokkarnir eru ólíkir og SF er reyndar enginn vinstri flokkur. Það sannar félagsmálaráðherra þessarar stjórnar best. Kannski höfum við alltaf verið óttalegt bananalýðveldi. Lýðræðið hefur aldrei verið hátt skrifað í í íslenskum stjórnmálum. Flokksræðið mun ganga frá okkur ef við gerum ekki hugarfarsuppreisn. Fyrir mér eru íslensk stjórnmál nú það dapurlegasta í veröldinni. Ég er kominn yfir miðjan aldur svo þessi staðreynd skiptir ekki meginmáli. En ég vona sannarlega að afkomendur mínir verði heppnari.
mbl.is Vilja að lögð verði áhersla á að fara með Icesave fyrir dómstóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju á að trúa.

Að utan berast þær fréttir að engin beiðni hafi borist frá íslenskum stjórnvöldum um nýjar viðræður í icesave deilunni. Varla er hægt að búast við svörum ef þetta er rétt. Við skulum afhenda þessum gönlu nýlenduveldum þessa 17 milljarða sem ku vera í innstæðutryggingasjóði og reyturnar af landsbankanum í þessum löndum. Punkum og basta af okkar hálfu. Fellum svo lögin þann 6. mars og látum bara reyna á þjóðréttarlega stöðu okkar í málinu. Það er að koma æ betur í ljós að það var aldrei nein ríkisábyrgð á innstæðum þessa einkabanka sjálfstæðisflokksins í þessum löndum. Stöndum í lappirnar og látum reyna á þetta. Hræðsluáróður ríkisstjórnarflokkanna er blásinn upp af valdasýkinni sem hrjárir þá svo mjög. Samfylkingin er tilbúinn til hvers sem er til að styggja ekki vini sína í Brussel og Steingrímur hangir í pilsfaldi Jóhönnu. Málflutningur stjórnarandstöðuflokkanna er reyndar ekki mjög trúverðugur. Það er auðvitað mikil nauðsyn á að hleypa þeim ekki til valda á ný. Sporin hræða. Andi Halldórs og Davíðs svífur enn yfir vötnunum og arfurinn sem við fengum eftir þessa menn, spillingin og misskiptingin er enn til staðar.
mbl.is Engin svör hafa borist að utan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blíða.

Það er vorblíða hér á Selfossi í morgunsárið á þessum ljúfa miðsvetrardegi. Maður og köttur eru næstum alsælir með tilveruna og báðir búnir að viðra sig. Blessað dýrið er þó örugglega enn sælla en fóstri þess. Sá þarf að umbera stjórnmálamenn landsins en kisi þarf ekkert að hugsa um þá. Ég er alveg yfirmáta uppgefinn á flestöllum stjórnmálamönnum nú um stundir. Það á jafnt við um ríkisstjórnarflokkana og stjórnarandstöðuna. Kannski eru þetta bara álög á okkur íslendingum. Ekki bætir heldur húsráðandinn á Bessastöðum þessa vondu stöðu. Vonandi er ég ekki einn um að hafa nánast gefist upp á pólitíkusunum. Pukrið og leyndin hefur lengi ráðir ríkjum hér. Og ekki hefur ástandið skánað eftir niðurstöðu síðustu kosninga þó ég hafi vonað það. Það eru notaðar sömu aðferðirnar og síðustu 60 árin. Það er eins og lýræðið hafi aldrei náð almennilegri fótfestu hér. Það má heldur ekki breyta neinu í grundvallaratriðum. Spillingin blómstrar áfram af fullum krafti. Sá sterki fær að troða á hinum sem minna má sín. Fjármagnið gengur fyrir öllu og stjórnin sem kennir sig við norræna velferð hefur meiri mætur á að vernda eigendur þess en venjulegu meðaljónana og gunnurnar. Ég er ekki gefinn fyrir blóðugar byltingar. Enn held ég í vonina um að stjórnmálamennirnir vakni. Nái að spóla sig upp úr hjólförum óréttlætisins. Gerum byltingu. Byltum hugarfarinu svo réttlætið eigi meiri möguleika.

Engar áhyggjur.

Þetta eru auðvitað ástæðulausar áhyggjur. Það mætti halda að þessi þekkti skipstjóri og aflamaður hefði ekki séð allar ályktanirnar frá VG. Veit hann ekki að þessi stjórn kennir sig við norræna velferð?Það á kannski að leggja varnarmálastofnun niður og það er búið að banna vændi. Kemur sér mjög vel fyrir heimilin. Steingrímur hefur líka sagt að hann sé alltaf að fresta nauðungaruppboðunum. Verðtryggingingin er bara smámál og nánast nöldur að minnast á hana. Ég tók t.d. lán hjá Bjöggunum 2004 þegar ég keypti íbúðarholuna mína. Lánið var 12.650.000 Tíminn hefur liðið og ég er búinn að borga svona í kringum 4.000.000  af láninu og það stendur einungis í 18.600.000  Steingrímur sagði reyndar fyrir kosningar að hann vildi afnema verðtrygginguna. Gott ef Jóhanna var ekki líka að spekúlera í því. Dæmið hér að framan hefur líklega sýnt þeim að þetta er gott og nákvæmlega eins og best verður á kosið. Þessvegna er líka óhætt að hækka alla neysluskatta  reglulega á 6 mánaða fresti þó lánin hækki nú örlítið við það. Lýðurinn borgar þó kaupið sé lágt og margir atvinnulausir. Svo má líka fresta uppboðunum aðeins. T.d. þangað til þessum velferðarráðherrum hefur tekist að koma okkur í sæluna hjá ESB. Voðalega er nú gott að hafa svona  fólk til að hugsa fyrir  sig og ákveða hvað er okkur fyrir bestu. Og hafa slegið skjaldborg um heimili landsins eins og þau lofuðu fyrir kosningar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Áhyggjur af aðgerðaleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Depurð.

Ósköp er nú dapurt að lesa þetta. Nánast samfelld lofrulla um ríkisstjórnina. Og svo segir þarna að nauðsynlegt sé að á næstu misserum sitji hér ríkisstjórn sem " kenni sig við" norræna velferð. Er nóg að kenna sig við eitthvað gott og státa sig svo á þeim forsendum? Ég hélt að það væru hin raunverulegu verk sem fólk gæti státað sig af en ekki draumórar sem enga stoð eiga í veruleikanum.  Sem fyrrum félagi í VG var ég að vonast eftir einhverju bitastæðara frá þessi ráðstefnu.  Ekki bara sjálfhælni um ímynduð eigin afrek. Ég get vissulega tekið undir sumt af því sem þarna er sagt, t.d. það að verkefnið eftir hrunið er risavaxið. Hrun, sem SF ber nokkra ábyrgð á með íhaldi og framsókn. Við munum hver var bankamálaráðherra þegar allt fór úrskeiðis hér. Við munum líka eftir hinni fáfengilegu iðju ISG sem aðallega eyddi tímanum erlendis við að reyna að koma okkur í öryggisráð SÞ og í þá dellu fóru nokkur hundruð milljónir króna. Ef ég man rétt var núverandi forsætisráðherra líka ráðherra í stjórn íhalds og SF sem svaf djúpum svefni meðan allt var að hrynja hér á árinu 2008.  Það er grátlegt að fylgjast með algjörum sinnaskiptum formanns VG eftir kosningar. Kosningaloforðin virðast ekki skipta miklu. Og þumalskrúfurnar á nokkrum þingmanna flokksins blasa við öllum.  VG virðist halda sjó í skoðanakönnunum. Mér finnst það í sjálfu sér ekkert undarlegt. Samfylkingin er að tapa fylgi og margir fyrrum stuðningsmenn hennar eru svo hrifnir af auðsveipni formanns VG við stefnumál SF og þeir geta vart vatni haldið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Flokksráð VG styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorg.

Það er sorglega komið fyrir VG um þessar mundir. Þegar flokkurinn var stofnaður 1999 var ég ekki í vafa um hvað kjósa skyldi. Árin liðu og ég gekk loks í flokkinn árið 2006 að mig minnir. Ég sagði mig þó fljótlega úr honum aftur því mér var ómögulegt að vera í sama stjórnmálaflokki og Jón Hjartarson, bæjarfulltrúi í Árborg. Ég studdi hann dyggilega í kosningunum 2006 og hélt að hann myndi standa við orð sín. Það hefur ávallt verið mér afar mikilvægt. Þegar hann komst svo til áhrifa þá varð annað uppi á teningnum. " Kalt mat" , eins og hann orðaði það sjálfur varð ofaná. Steingrímur féll í sama pyttinn eftir síðustu kosningar. Það tók hann rúman sólarhring að svíkja loforð sitt varðandi ESB. Aðspurður um verðtrygginguna fyrir kosningar sagðist hann vilja afnema hana. Lítið hefur orðið um efndir. Nema að einu leyti. Hann hefur afnumið verðtrygginga á persónuafslættinum. Afrek út af fyrir sig. Á sama tíma hækkar hann neysluskatta gegndarlaust þó vitað sé að þeir bitna harðast á þeim sem minnst bera úr býtum í þessu þjóðfélagi. Steingrímur er gjörsamlega óþekkjanlegur. Ekkert sannar það betur en meinloka hans varðandi ríkisábyrgðina á einkaskuldum nokkurra sjálfstæðismanna. Hann tók líka undir lygina og óhróðurinn um fyrrum vopnabróður sinn og samherja, Ögmund Jónasson. Heiðarlegasta og einlægasta manninn sem nú situr á þingi. Allir vissu sannleikann. Ögmundur hefur aldrei verið verkkvíðinn maður. Hann var einfaldlega hrakinn úr ríkisstjórninni og þæg og metnaðarlítil kona úr einkahirð Steingríms tók við. Móðir mín sagði einu sinni við mig að það væri dyggð að geta fyrirgefið og ég er sama sinnis. Ef Steingrímur sér að sér munu mörg okkar fyrirgefa honum. Ekkert okkar hefur kennt honum um afleiðingarnar af 18 ára setu sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Við erum bara afar ósátt hvernig hann höndlar völd sín nú. Við viljum að hann sættist við vopnabróður sinn og fjöldamörg okkar sem höfum verið fótgönguliðar í baráttunni fyrir hugsjónum VG. Kosið flokkinn og stutt hann með ráðum og dáð.Vonandi á VG bjarta framtíð í íslenskum stjórnmálum. Til þess að svo megi verða verður Steingrímur að leita sátta. Það er enn ekki of seint.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Fast skotið á báða bóga hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð menningin.

Það er afar gott mál að stórmeistararnir okkar skuli fá laun frá ríkinu. Þessi göfuga hugaríþrótt og listgrein í leiðinni á að njóta sannmælis því hún hefur oft borið hróður okkar um heimsbyggðina. Mér er ógleymanleg frammistaða Friðriks Ólafssonar í gamla daga. Gat varla sofið af spenningi þegar hann tók þátt í skákmótinu í Portoros 1958 og stóð sig frábærlega. Þar var líka vinur okkar Bobby Fischer, þá aðeins 15 ára gamall. Úrtölur og smámunasemi eiga illa við í þessu sambandi. Það sama gildir um listamannalaunin. Þetta eru smáaurar miðað við allt féð sem bruðlað er með í tóma dellu. T.d. mætti spara mikla peninga í utanríkisþjónustunni þó við héldum áfram öflugu starfi á alþjóðavettangi. Varnarmálastofnun er líka gott dæmi um afar fáfengilegt bruðl sem við höfum ekkert með að gera. Höldum áfram að launa listamenn okkar og aðra andlega snillinga. Við höfum vel efni á því þó harðnað hafi á dalnum. Ráðuneytin eru líka ofhlaðin af fólki sem þangað hefur verið ráðið á pólitískum forsendum einum saman. Því miður er það yfirleitt flokksskírteinið sem blívur og það hefur þvi miður engin pólitísk siðbót orðið með norrænu velferðarstjórninni sem nú situr.
mbl.is Óskýrar reglur um laun stórmeistara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin takmörk?

Eru engin takmörk á dellunni sem getur oltið uppúr þessum þingmanni? Heldur hann við tökum meira mark á honum en þeim mikla fjölda af " svokölluðum sérfræðingum" sem hann er að gera svo lítið úr með þessum orðum sínum? Mér er svo sem sama um þetta blaður ef Steingrímur er að ná áttum. Hvernig væri nú að Steingrímur settist niður með fyrrum vopnabróður og samherja, Ögmundi Jónassyni, og ræddi icesave málið á vitrænum nótum og tæki þessa gatslitnu plötu plötu af fóninum? Hann yrði sannarlega maður að meiri og það er öllum hollt að losna við meinlokur á borð við þá að við eigum að una við lögin sem samþykkt voru milli jóla og nýárs vegna þess að þau séu það skásta í stöðunni. Það sáu það allir að Ásmundur Einar og Guðfríður Lilja voru með þumalskrúfurnar vel njörvaðar á sér. Þó ég sé nú lítt hrifinn af populistanum suður á Bessastöðum þá var augljóst að hann gat lítið annað gert en að neita að skrifa undir lögin. Stundum hefur fólk rangt fyrir sér. Það er engin skömm að geta skipt um skoðun. Steingrímur fengi mikið til baka af glötuðu trausti okkar margra sem kusum VG í síðustu kosningum ef hann staldraði við og hætti að tala um að allir sem eru honum ekki sammála í þessu máli séu bara að þvælast fyrir. Lítið eða ekkert af hræðsuáróðinum um að allt fari úrskeiðis ef lögin verða felld hefur ræst. Við breytum ekki fortíðinni. Hún verður þarna áfram. En við getum haft áfhrif á framtíðina. Steingrímur missir ekki andlitið við að staldra við og hugleiða hvort ekki sé nú rétt að skipta um kúrs. Heillastefnu fyrir okkur og komandi kynslóðir og  verða þannig til þess að okkur takist að standa í lappirnar í stað þess að láta undan ofbeldinu og viðja börnin okkar og barnabörn í skuldafjötra.  Mjög margt bendir til þess samkvæmt þjóðréttarreglum að okkur beri alls ekki að greiða þessa skuld. Og alls ekki á þann veg sem nýju lögin neyða okkur til.
mbl.is Björn Valur: Umræðan á villigötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband